Tveir stórir jarðskjálftar riðu yfir í Bárðarbungu í morgun. Annar þeirra mældist 4,1 stig en hinn 3,8 stig.
„Núna í morgun (4. mars) kl. 05:46 varð skjálfti í Bárðarbungu af stærð 3,8. Stuttu eftir fylgdi annar skjálfti af stærð 4,1. Nokkrir eftirskjálftar hafa mælst í kjölfarið. Engin merki sjást um gosóróa,“ segir í tilkynningu frá jarðvársviði Veðurstofu Íslands.
Stærsti skjálfti ársins reið yfir í norðanverðri Bárðarbunguöskjunni 23. febrúar en hann mældist 4,2 stig. 28. desember varð skjálfti af stærðinni 4,8 á svipuðum slóðum.