Fallist á áætlun um endurvinnslusvæði

Frá Álfsnesi.
Frá Álfsnesi.

Skipulagsstofnun hefur fallist á tillögu að matsáætlun með athugasemdum vegna fyrirhugaðrar landfyllingar og hafnar fyrir efnisvinnslusvæði Björgunar á Álfsnesi. Í heild er um að ræða 12-15 hektara svæði í Álfsnesvík sem talinn er vænlegasti kosturinn eftir valkostagreiningu að mati framkvæmdaraðila.

Í ákvörðun Skipulagsstofnunar er fjallað um valkosti, rannsóknir og vöktun ásamt áhrifum á landslag og ásýnd, strandsvæði, lífríki í sjó og á landi, menningar- og náttúruminjar og samfélag.

Athugasemdir Skipulagsstofnunar eru eftirfarandi:

  • í frummatskýrslu þurfi að gera ítarlega grein fyrir valkostum fyrir staðsetningu.
  • leggja þurfi mat á áhrif á ásýnd og landslag.
  • leggja þurfi mat á áhrif útskolunar gruggs til sjávar.
  • hafa þurfi samráð við Náttúrufræðistofnun Íslands vegna áhrifa á fjörulíf, gróður og fugla.
  • gera þurfi grein fyrir þeirri minjaheild sem sé að finna í nágrenni við framkvæmdasvæðið og fyrirhuguðum mótvægisaðgerðum
  • gera þurfi grein fyrir beinum áhrifum á framkvæmdatíma.
  • leggja þurfi fram áætlun um vöktun að loknum framkvæmdum.

Nú þegar Skipulagsstofnun hefur fallist á tillögu að matsáætlun er næsta skref í ferlinu að framkvæmdaaðili skilar inn frummatsskýrslu og þarf hún að vera í samræmi við  matsáætlunina, segir í tilkynningu.

Í frummatsskýrslu setur framkvæmdaraðili fram mat sitt á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar í samræmi við matsáætlun og sendir Skipulagsstofnun skýrsluna. Stofnunin fer yfir skýrsluna og metur hvort hún sé í samræmi við matsáætlun og ákvæði laga og reglugerðar. 

Ákvörðun Skipulagsstofnunar í heild

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert