Nauðgun á barni rómantíseruð hjá Laxness

Helga Kress er prófessor emeritus í bókmenntafræði við Háskóla Íslands.
Helga Kress er prófessor emeritus í bókmenntafræði við Háskóla Íslands. Morgunblaðið/Einar Falur Ingólfsson.

Nauðgan­ir á börn­um hafa gjarn­an verið róm­an­tíseraðar í ís­lensk­um bók­mennt­um. Til dæm­is um það má nefna nauðgun Ólafs Ljós­vík­ings gegn 14 ára gam­alli stúlku í Heims­ljósi Hall­dórs Lax­ness. Fjölda annarra dæma um þessa tilhneigingu má finna í verkum Laxness, svo sem í Sölku Völku, Íslandsklukkunni og fleiri verkum.

Þetta kom fram í máli Helgu Kress á Hug­vís­indaþingi í Há­skóla Íslands í dag. Bar er­indi henn­ar heitið „Era gapripl­ar góðir“ – Um barnagirnd og barn­aníð í ís­lensk­um bók­mennt­um.

Hafði Helga meðal ann­ars borið sam­an frá­sögn Lax­ness af sam­neyti Ólafs ljósvíkings og skýrslu af hinu raun­veru­lega máli Magnús­ar Ljós­vík­ings, sem per­sóna Ólafs er byggð á, úr dóma­bók Ísa­fjarðar­sýslu þar sem nauðgun Magnús­ar á ungri stúlku er lýst.

Fram kom í máli Helgu að hjá Lax­ness verði nauðgun­in að eðlilegu kynlífi í aug­um stúlk­unn­ar, sem sam­ræm­ist ekki upp­lif­un ófermdr­ar Ágústínu Guðjónu sem mætti fyr­ir rétti vegna máls­ins. Sá vitnisburður sem má lesa í raunverulegum dómabókum er á þá leið að atburðurinn hafi verið henni „sárnauðugur“ á meðan stúlkunni í verki Laxness finnist kynlífið með fullorðna manninum „eðlilegt og sjálfsagt.“

„Svona er hægt að breyta kynferðisofbeldi í ást, svona er hægt að rómantísera ofbeldi,“ sagði Helga.

Helga Kress segir nauðgun verða saklausa og eðlilega í augum …
Helga Kress segir nauðgun verða saklausa og eðlilega í augum fórnarlambsins í skáldverki Laxness, sem samræmist ekki upplifun ófermdrar Ágústínu Guðjónu sem mætti fyrir rétti vegna málsins í upphafi 20. aldar. mbl.is/Ólafur K. Magnússon

Í er­indi sínu gekk Helga út frá kviðlingi þeim í Njálu er Þórhildur skáldkona kveður manni sínum til að ávíta hann fyrir að stara á unga stúlku: „Era gapriplar góðir/gægr er þér í augum“. Hún setti það viðhorf til gapripla, sem hún sagði merkja eitthvað eins og stelpudrusla, í samhengi við Heimsljós, þar sem orðið er notað þegar menn ræðast á um ákæruna á hendur Ólafi Ljósvíkingi.

Fullt út úr dyrum

Vegna mik­ill­ar aðsókn­ar þurfti að færa fyr­ir­lest­ur­inn í stærri stofu, en auk Helgu voru þær Soffía Auður Birg­is­dótt­ir og Dagný Kristjáns­dótt­ir með er­indi. Soffía Auður flutti fyrirlesturinn „Þessi tvífætta villi­bráð“ og Dagný erindi sem hún kallaði Sam­særi.

Soffía Auður ræddi það stef í nýlega útkomnum bókum íslenskra skáldkvenna, að ræða „heimleiðina“. Hún tók dæmi úr verkum Lindu Vilhjálms, Steinunnar Sigurðardóttur og Fríðu Ísberg af frásögnum kvenna af því að vera einar á ferð á leiðinni heim af skemmtun og vera hræddar við að vera beittar ofbeldi.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert