Litlar lægðir stýra veðrinu

Jafnvel má búast við eldingum við vesturströndina í næstu viku.
Jafnvel má búast við eldingum við vesturströndina í næstu viku. Ljósmynd/Harpa Hlín Sigurðardóttir

Meginskil hlýrra og kaldra loftmassa eru suður af landinu en í kalda loftinu í kringum landið myndast litlar lægðir sem stýra veðrinu næstu daga, segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. 

Það er áfram fremur vetrarlegt veður á landinu í dag, austlæg átt og slydduél eða él í flestum landshlutum með hita rétt yfir frostmarki yfir hádaginn. 

Á laugardag styttir víða upp og má búast við björtum og fallegum degi en á sunnudag gæti snjóað á vestanverðu landinu. 

Eftir helgi er útlit fyrir útsynning, þ.e. suðvestanátt og él á vestanverðu landinu en þurrviðri austan til. Ekki er óalgengt að eldingar mælist við vesturströndina í slíkum veðrum en þó er of snemmt að segja til veðrið eftir helgi nái slíkum hæðum, segir enn fremur á vef Veðurstofu Íslands.

Veðurspá fyrir næstu daga

Austan 5-13 m/s en heldur hvassara við SA-ströndina fram yfir hádegi. Slydduél eða él í flestum landshlutum en úrkomuminna norðan til á landinu á morgun. Hiti um eða undir frostmarki í nótt, en yfirleitt 0 til 5 stiga hiti yfir daginn.

Á föstudag:
Austan 5-13, en heldur hvassara við suðausturströndina. Él við suður- og austurströndina, annars yfirleitt úrkomulítið. Vægt frost, en yfirleitt frostlaust við ströndina yfir hádaginn. 

Á laugardag:
Austanátt, 5-13 m/s. Skýjað með köflum og dálítil él A-lands í fyrstu. Hiti 0 til 4 stig S-til á landinu að deginum, en víða 0 til 5 stiga frost annars staðar. 

Á sunnudag:
Sunnanátt og slydda eða snjókoma með köflum, en þurrt A-lands. Hiti nálægt frostmarki. 

Á mánudag:
Allhvöss sunnanátt og rigning, en þurrt NA-til á landinu. Hlýnandi í bili. 

Á þriðjudag og miðvikudag:
Suðvestanátt og él, en léttskýjað A-lands. Hiti um frostmark.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert