Andlát: Örn Erlingsson

Örn Erlingsson
Örn Erlingsson

Örn Erlingsson, skipstjóri og útgerðarmaður, lést 13. mars sl. 82 ára að aldri. Hann var fæddur í Steinshúsi í Gerðahverfi í Garði 3.2. 1937 og ólst þar upp. Örn var sonur Erlings Eyland Davíðssonar, sjómanns og bifreiðarstjóra, og Guðrúnar Steinunnar Gísladóttur húsfreyju.

Örn byrjaði til sjós fyrir fermingu og var orðinn meðeigandi í trillu með föður sínum er hann var 11 ára. Örn var 15 ára er hann fór á vertíð í Keflavík, var á vetrarvertíðum og síðan á síldveiðum á sumrin fyrir Norðurlandi. Örn lauk meira fiskimannaprófi frá Stýrimannaskólanum 1958 og var orðinn skipstjóri er hann var 22 ára.

Hann var síðan skipstjóri meðan hann stundaði sjó, m.a. á Ingiber Ólafssyni KE og Eldey KE. Örn starfaði við þróunaraðstoð og veiðar í Suður-Kóreu á vegum FAO árin 1969-73. Þá festu hann og Þorsteinn, bróðir hans, kaup á Erni RE og var Örn skipstjóri á honum og gerði hann út um árabil, ásamt fleiri bátum, s.s. Erni KE 13, Erni KE 14, Guðrúnu Gísladóttur KE 15 auk þess sem hann og Þorsteinn gerðu út Erling KE og Búrfell KE. Örn hætti útgerð 2016. Áhugamálin voru meðal annars golf og laxveiðar.

Eiginkona Arnar var Bergljót Stefánsdóttir, f. 14.5. 1938, d. 12.8. 2000, húsfreyja. Synir þeirra eru Stefán Arnarson hagfræðingur, Erlingur Arnarson sjávarútvegsfræðingur, Hjörtur Arnarson tölvunarfræðingur, og Örn Arnarson hagfræðingur. Dóttir Arnar frá því fyrir hjónaband er Dagfríður Guðrún Arnardóttir húsfreyja.

Sambýliskona Arnar er Ingunn Þóroddsdóttir kennari.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert