Segja úrskurð Félagsdóms vonbrigði

Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar.
Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar. mbl.is/Hari

Efling – stéttarfélag lýsir yfir vonbrigðum með úrskurð Félagsdóms í máli Samtaka atvinnulífsins gegn félaginu vegna boðaðra örverkfalla eða vinnutruflana sem hefjast áttu 18. mars.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eflingu.

„Það er miður að félagsmenn okkar fái ekki að nýta verkfallsréttinn til fulls. Þessar aðgerðir eru hófsamar og byggja á stigmögnun frekar en að til fullra áhrifa komi strax,“ er haft eftir Viðari Þorsteinssyni, framkvæmdastjóra Eflingar.

„En við hlítum að sjálfsögðu þessum dómi og lærum af honum.“

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. mbl.is/Hari

„Við erum hvergi af baki dottin og höldum ótrauð áfram með hefðbundin verkföll sem boðuð hafa verið og hefjast næstkomandi föstudag,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.

Í boðuðum aðgerðum stóð til að starfsmenn myndu leggja niður venjubundna vinnu sína að einhverju leyti eins og ítarlega var útfært í verkfallsboðunum og tilkynnt um. Sameiginlegt markmið aðgerðanna er, samkvæmt tilkynningu, að knýja á um gerð nýrra kjarasamninga við stefnanda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert