TF-EIR komin til landsins

TF-EIR er nýjasta þyrlan í flota Landhelgisgæslunnar og kom hún …
TF-EIR er nýjasta þyrlan í flota Landhelgisgæslunnar og kom hún til landsins í dag frá Noregi. mbl.is/Árni Sæberg

Fyrri þyrlan af tveimur í bráðabirgðaendurnýjun þyrluflota Landhelgisgæslunnar kom til landsins í dag. Sigurður Heiðar Wiium, yfirflugstjóri Landhelgisgæslunnar, segir að tilkoma þyrlunnar muni stuðla að aukinni getu Landhelgisgæslunnar til að takast á við komandi verkefni.

Gæsl­an hef­ur þrjár þyrl­ur á snær­um sín­um en tvær er hún með á leigu. TF-LIF er í eigu gæslunnar og nú verður TF-GNÁ og TF-SÝN skipt út fyrir aðrar nýrri vélar af sömu fjölskyldu, það er Super Puma. Vélin sem kom til landsins í dag frá Noregi ber heitið TF-EIR.  „Í vélinni er nýrri búnaður og hún er hæfari en sú eldri að öllu leyti,“ segir Sigurður. Seinni vélin kemur til landsins á næstu vikum og mun hún fá nafnið TF-GRÓ og leysir hún TF-SÝN af hólmi.

Þyngri, stærri og öflugri

Vélin sjálf er hins vegar ekki splunkuný. „En þetta er nýjasta gerð af Super Puma-fjölskyldunni og lítur mjög svipað út en er örlítið þyngri, stærri og öflugri. Öll sjálfvirkni og tæki um borð eru ný eða nýlegri og ættu að gefa okkur meiri getu til að nýta tækin til þeirra verka sem við notum vélarnar í,“ segir Sigurður.  

Þyrlan kom til landsins frá Noregi í dag en verður líklega ekki tekin í formlega notkun fyrr en í apríl eða maí. „Það sem þarf að gera er að þjálfa flugvirkja og flugmenn og við erum langt á veg komin með flugmennina. Vélarnar koma hægt og rólega í þjónustu, þetta tekur alltaf meiri tíma en menn halda og það er töluverð pappírsvinna í kringum þetta,“ segir Sigurður.  

Sigurjón Sigurgeirsson, flugvirki hjá Landhelgisgæslunni, og Norðmennirnir Steinar Haugen flugmaður …
Sigurjón Sigurgeirsson, flugvirki hjá Landhelgisgæslunni, og Norðmennirnir Steinar Haugen flugmaður og Frode Moi aðstoðarflugmaður. mbl.is/Árni Sæberg

Aukið öryggi í komandi verkefnum

Þyrlu­út­köll­um Land­helg­is­gæsl­unn­ar hef­ur fjölgað á síðustu misserum og segir Sigurður að nýju vélarnar muni stuðla að auknu öryggi í komandi verkefnum. „Þetta eru öflugri vélar og ættu að geta aukið öryggi og hæfni okkar til þess að sinna þeim verkefnum sem koma.“ Hann minnir hins vegar á að þyrlurnar séu hluti af því ferli sem nú stendur yfir í útboðsmálum.

„Þetta eru spennandi tímar, við erum að endurnýja leiguflotann en líka að vinna í þyrluútboðsmálum. Allt er þetta spennandi en vissulega mikil vinna og tekur aðeins á, þannig. Það sem maður hlakkar mest til að sjá er meira öryggi og hæfari verkfæri til að nota í þau verkefni sem við erum að fara í.“

Blaðamaður Morgunblaðsins og mbl.is fékk að slást með í för þegar TF-EIR kom til landsins í dag líkt og sjá má á myndunum hér að neðan. 

Þyrlan er af nýjustu gerð Super Puma-fjölskyldunnar.
Þyrlan er af nýjustu gerð Super Puma-fjölskyldunnar. mbl.is/Árni Sæberg
Að mörgu er að huga þegar ný þyrla er tekin …
Að mörgu er að huga þegar ný þyrla er tekin í notkun og mun TF-EIR líklega verða formlega tekin í gagnið í næsta mánuði. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert