Búið er að finna drengina sem lögreglan á Suðurnesjum auglýsti eftir nú í kvöld. Drengirnir, sem eru níu ára gamlir og úr Grindavík, skiluðu sér ekki heim eftir skóla og biðlaði lögregla því til Grindvíkinga að svipast um eftir drengjunum.
Lögregla greindi svo frá því á Facebook-síðu sinni nú fyrir skemmstu að drengirnir væru fundnir.