Á sjöunda tug í heimasóttkví

Ef ekki greinist nýtt tilfelli mislinga á landinu fyrir 26. …
Ef ekki greinist nýtt tilfelli mislinga á landinu fyrir 26. mars eru yfirgnæfandi líkur á að mislingafaraldurinn hafi stöðvast. mbl.is/​Hari

Á fundi sóttvarnalæknis í morgun með umdæmis- og svæðislæknum sóttvarna kom fram að ekki hafa greinst ný tilfelli mislinga en nokkrir einstaklingar hafa að lokinni bólusetningu greinst með væg einkenni mislinga sem orsakast af verkun bólusetningarinnar.

Ef ekki greinist nýtt tilfelli mislinga á landinu fyrir 26. mars eru yfirgnæfandi líkur á að mislingafaraldurinn hafi stöðvast.

Þetta kemur fram á vefsíðu embættis landlæknis.

Þar kemur enn fremur fram að samtals eru 66 einstaklingar í heimasóttkví á landinu. Eins og áður hefur komið fram er heildarfjöldi staðfestra tilfella fimm og eitt vafatilfelli.

Hvert tilfelli hefur því áhrif á marga aðila í nánasta umhverfi. Í heimasóttkví felst að þeir einstaklingar sem hafa komist í tæri við sýktan einstakling skulu halda sig heima frá sjötta degi eftir að þeir komust í tæri við hann og fram að 21. degi, að því er fram kemur á vef landlæknis.

Dreifingu bóluefnis er að ljúka um allt land og má finna upplýsingar um framkvæmd bólusetninga á vef einstakra heilsugæslustöðva. Framkvæmd bólusetninga hefur gengið vel á landinu og ekki komið upp nein vandamál svo vitað sé.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert