Öllum beiðnum um undanþágu hafnað

Frá verkfalli hótelstarfsmanna á dögunum.
Frá verkfalli hótelstarfsmanna á dögunum. mbl.is/Eggert

Öllum beiðnum sem hafa borist um undanþágu frá verkfalli Eflingar sem hefst á miðnætti í kvöld hefur verið hafnað.

Þetta segir Tryggvi Marteinsson, þjónustufulltrúi hjá Eflingu, í samtali við RÚV.

Alls höfðu um fimmtán beiðnir borist í gær og í dag. Búist er við að fleiri beiðnir um undanþágu berist vegna verkfallanna í næstu viku.  

Engin truflun verður á ferðaþjónustu fatlaðra vegna verkfallanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert