Aflýsa öðru flugi frá London

Flugi WOW air frá Gatwick til Keflavíkur í kvöld hefur …
Flugi WOW air frá Gatwick til Keflavíkur í kvöld hefur verið aflýst. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Flugi WOW air frá Gatwick til Keflavíkur sem áætlað var seint í kvöld hefur verið aflýst. Þetta er annað flugi WOW air frá Gatwick til Keflavíkur í dag sem er aflýst, en flugi félagsins til Lundúna í morgun var aflýst.

Í skilaboðum sem farþegar fengu send fyrir skömmu segir að fluginu hafi verið frestað vegna rekstrartakmarkana (e. Operational restrictions).

Farþegum WOW air sem áttu bókað flug frá Gatwick til …
Farþegum WOW air sem áttu bókað flug frá Gatwick til Keflavíkur í kvöld hafa fengið skilaboð þess efnis að fluginu hafi verið aflýst.

RÚV hefur eftir Svanhvíti Friðriksdóttur, upplýsingafulltrúa WOW air, að því miður hafi þurft að aflýsa flugi frá London í dag en að allt flug félagsins verði samkvæmt áætlun á morgun.

Áætlunarflug félagsins innan Evrópu hefur að öðru leyti gengið eftir í dag, að undanskildu flugi WOW air til Dublin sem fara átti í loftið klukk­an 6:55 fer ekki fyrr en klukk­an 00:55 í kvöld. Vél­in sem átti að koma frá Dublin klukk­an 13:35 mun ekki lenda fyrr en á fjórða tím­an­um í nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert