Geta fengið flugmiða endurgreidda

Tímafrestur til að gera endurkröfu er 120 dagar frá því …
Tímafrestur til að gera endurkröfu er 120 dagar frá því þjónusta átti að vera afhent. mbl.is/Eggert

Handhafar Visa- og MasterCard-greiðslukorta sem keypt hafa flugmiða hjá gjaldþrota flugfélagi geta átt endurkröfurétt. Korthafar þurfa að gera skriflega athugasemd við færslu á vefsíðu útgáfubanka kortsins, eða á vefsíðu Valitor.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Valitor.

Tilefnið er frétt sem birtist á mbl.is fyrr í dag um réttarstöðu miðahafa hjá WOW air ef til gjaldþrots kemur.

Sagði í fréttinni að sé flug­miði greidd­ur með greiðslu­korti með góðum fyr­ir­vara, og því búið að greiðslu­færa kaup­in, get­ur verið of seint að end­ur­greiða miðann.

Fulltrúi Valitors kom því á framfæri að hið rétta væri að tímafrestur til að gera endurkröfu sé 120 dagar frá því þjónusta átti að vera afhent.

„Meginreglan er að handhafar Visa- og MasterCard-greiðslukorta, bæði debet- og kreditkorta, eiga endurkröfurétt þegar fyrirframgreidd þjónusta hefur ekki verið eða verður ekki innt af hendi,“ segir fulltrúinn um þennan rétt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert