Flug WOW á áætlun

Flugvél WOW air sem var að koma frá Montreal í Kanada lenti á Keflavíkurflugvelli klukkan 4:13 í nótt en vélin átti að koma hingað til lands sólarhring fyrr. Alls komu sex vélar WOW frá Norður-Ameríku í morgun.

Sjö flugvélar WOW eru annaðhvort farnar eða eru að fara í loftið á næstu klukkustundum til Evrópu og er allt það flug á áætlun. Vélin til Frankfurt fór jafnvel talsvert fyrr en til stóð í loftið í morgun, fór 5:37 í stað 6. 

Vél WOW air sem átti að fara til Las Palmas klukkan 9:05 hefur verið seinkað til 13:40. Aðrar brottfarir félagsins virðast vera á áætlun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert