MAST kærir sölu ólöglegra fæðubótarefna

Fæðubótarefni. Mynd úr safni.
Fæðubótarefni. Mynd úr safni. Af vef Matvælastofnunar

Matvælastofnun hefur, í samvinnu við Lyfjastofnun, kært vef með íslensku léni til lögreglu og farið fram á að vefnum verði lokað. Á vefnum eru auglýst til sölu bæði ólögleg fæðubótarefni og lyf að því er fram kemur í frétt á vef MAST.

Rétthafi lénsins er skráður í Mið-Ameríku, en vefleit gefur til kynna starfsemi í Ástralíu.

Varar MAST í fréttinni við viðskiptum við vefinn www.roidstop.is, sem og neyslu fæðubótarefna og lyfja sem vefurinn segist selja. Er neytendum jafnframt bent á að vera ávallt á varðbergi er kemur að kaupum á fæðubótarefnum og lyfjum á netinu.

Á vef roidstop eru til sölu hættuleg efni s.s. DNP og Nootropics. Nýlega féll dómur í Bretlandi vegna dauða ungrar stúlku sem neytt hafði DNP og hlaut sölumaðurinn sjö ára fangelsisdóm fyrir manndráp af gáleysi. Þá leikur grunur á að nýlegt andlát einstaklings hér á landi megi rekja til inntöku á Noontropics (tianeptine).

MAST barst ábending um vefinn í gegnum hraðviðvörunarkerfi Evrópu um matvæli og fóður (RASFF).

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert