Landgangar teknir úr notkun á Keflavíkurvelli

Veðrið hefur áhrif á flugfarþega í Keflavík. Mynd úr safni.
Veðrið hefur áhrif á flugfarþega í Keflavík. Mynd úr safni. mbl.is/Eggert

Búið er að taka alla landganga úr notkun á Keflavíkurflugvelli vegna veðurs. Þetta staðfestir Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia. Ef vind lægir nægilega mikið eru landgangar teknir aftur í notkun.

Einhverjar vélar eru lentar, að sögn Guðjóns. Ekki er vitað hvort hægt er að nota stigabíl til að ferja farþega úr flugvélunum en notkun þeirra er ekki í höndum Isavia. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert