Ekki langt í að bílastæðin fyllist

Isavia sendi út tilkynningu í gær þar sem farþegar voru …
Isavia sendi út tilkynningu í gær þar sem farþegar voru hvattir til þess að bóka bílastæði fyrirfram. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Farþegar sem ekki eiga bókuð bílastæði við Keflavíkurflugvöll geta ekki gengið að því vísu að þeir fái stæði við völlinn. „Það er töluverð aðsókn í stæðin og ekki langt í að þau fyllist,“ segir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, í samtali við mbl.is.

Enn er hægt að tryggja sér stæði í gegn um vef Keflavíkurflugvallar og hvetur Guðjón þá sem eru á leið erlendis í frí til þess að bóka bílastæði fyrirfram.

Isavia sendi út tilkynningu í gær þar sem farþegar voru hvattir til þess að bóka bílastæði fyrirfram til þess að tryggja sér stæði. Með því fáist stæðin auk þess á betra verði. Að sögn Guðjóns verður send út ný tilkynning ef eða þegar bílastæðin verða fullbókuð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert