Eldur í íbúð við Gránufélagsgötu

mbl.is/Eggert

Eldur kviknaði í íbúð á jarðhæð fjölbýlishúss við Gránufélagsgötu á Akureyri upp úr klukkan hálffimm í dag.

Að sögn lögreglunnar á Norðurlandi eystra var eldurinn minniháttar.

Ekki er ljóst með eldsupptök sem stendur en fjölbýlishúsið er á fjórum hæðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert