Nefnd skipuð vegna dóma MDE

Mannréttindadómstóll Evrópu.
Mannréttindadómstóll Evrópu. Ljós­mynd/​ECHR

Dómsmálaráðherra og fjármálaráðherrra hafa skipað nefnd sem á að greina þau álitaefni sem leiða af dómum Mannréttindadómstóls Evrópu í tengslum við rannsókn og saksókn skattalagabrota og móta afstöðu til þess hvort og þá til hvaða breytinga þarf að ráðast í til að mæta þeim.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Íslenska ríkið hefur í þrígang verið dæmt brotlegt gegn 4. gr. 7. samningsviðauka við Mannréttindasáttmála Evrópu sem kveður á um réttinn til að vera ekki saksóttur eða refsað tvívegis fyrir sama brot.

Við vinnu nefndarinnar skal leggja til grundvallar þær skýrslur sem unnið hefur verið að síðastliðin ár í tengslum við þessi álitaefni. Formaður nefndarinnar er Ása Ólafsdóttir, prófessor, en auk hennar sitja í nefndinni, Snorri Olsen, ríkisskattstjóri, Bryndís Kristjánsdóttir, skattrannsóknarstjóri,

Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari, Björn Þorvaldsson, saksóknari, Ingibjörg Helga Helgadóttir, lögfræðingur, Haraldur Steinþórsson, lögfræðingur og Hinrika Sandra Ingimundardóttir, lögfræðingur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert