Umferðin inn í Reykjavík þyngist

Umferðin þyngist inn í borgina þegar allir koma heim á …
Umferðin þyngist inn í borgina þegar allir koma heim á sama tíma. Haraldur Jónasson/Hari

Umferðin ætti að þyngjast inn í Reykjavík núna síðdegis og með kvöldinu. Veður var gott í dag þannig að ætla má að fólk hafi staldrað lengur við en ella í sumarbústöðum til að njóta sólarinnar. Því eru fleiri að koma inn í höfuðborgina á sama tíma.

Engin óhöpp hafa ratað á borð lögreglunnar það sem af er deginum en en hún verður að sögn með vakt á mótum Suður- og Vesturlandsvegar síðdegis. Samkvæmt upplýsingum frá þeim er gert ráð fyrir talsverðri umferð, sem þyngist eftir því sem líður á kvöldið.

Lögreglan biðlar að vanda til fólks að fara varlega og minnir vitaskuld á þolinmæðina, sem þrautir vinnur allar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert