Tilnefnd til Maístjörnunnar

Upplýst var í Gunnarshúsi fyrir stundu hvaða höfundar væru tilnefndir …
Upplýst var í Gunnarshúsi fyrir stundu hvaða höfundar væru tilnefndir til Maístjörnunnar í ár. mbl.is/Kristinn Magnússon

Maístjarnan, ljóðabókaverðlaun Rithöfundasambands Íslands og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, verða veitt í þriðja sinn í maí. Upplýst var í Gunnarshúsi fyrir stundu hvaða höfundar væru tilnefndir til Maístjörnunnar í ár.

Tilnefnd eru Ásdís Ingólfsdóttir fyrir Ódauðleg brjóst sem Partus gefur út; Eva Rún Snorradóttir fyrir Fræ sem frjóvga myrkrið sem Benedikt bókaútgáfa gefur út; Gerður Kristný fyrir Sálumessu sem Mál og menning gefur út; Haukur Ingvarsson fyrir Vistarverur sem Mál og menning gefur út; Linda Vilhjálmsdóttir fyrir Smáa letrið sem Mál og menning gefur út og Sigfús Bjartmarsson fyrir Homo economicus I sem MTH útgáfa gefur út. Tilnefndar bækur eru allar til sýnis í anddyri Þjóðarbókhlöðunnar.

Gjaldgengar voru allar útgefnar íslenskar ljóðabækur ársins 2018 sem skilað var til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og fékk dómnefnd þær til umfjöllunar. Dómnefnd skipa Sveinn Yngvi Egilsson fyrir hönd Rithöfundasambandsins og Eva Kamilla Einarsdóttir fyrir hönd Landsbókasafnsins.

Verðlaunin verða veitt við athöfn í Þjóðarbókhlöðunni 20. maí. Verðlaunafé er 350 þúsund krónur. Maístjarnan er einu verðlaun á Íslandi sem veitt eru eingöngu fyrir útgefna íslenska ljóðabók. Verðlaununum er ætlað að hvetja skáld til að yrkja og koma ljóðum sínum í útgáfu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert