Fullnægjandi heimild til kyrrsetningar

Farþegaþota ALC í vörslu Isavia á Keflavíkurflugvelli.
Farþegaþota ALC í vörslu Isavia á Keflavíkurflugvelli. Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson

„Við teljum að fullnægjandi heimild sé fyrir þessu,“ segir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, inntur eftir viðbrögðum við ummælum lögmanns bandarísku flugvélaleigunnar Air Lease Corporation (ALC) um að hlutur þotunnar TF-GPA í tveggja milljarða heildarskuld WOW air nemi aðeins fjórum prósentum.

Guðjón bætir því við að Isavia muni ekkert tjá sig frekar um málið í fjölmiðlum. Isavia hefur kyrrsett þotuna og krefur ALC um tveggja milljarða króna greiðslu á skuld WOW air.

Mál ALC gegn Isavia verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness klukkan 15.40 í dag. Við fyrirtöku málsins fyrir viku síðan fékk Isavia vikufrest til að leggja fram greinargerð, sem rennur því út í dag.

Málflutningur hefst síðan á fimmtudaginn.

Oddur Ástráðsson, lögmaður ALC, sagði í samtali við mbl.is í gærkvöldi að fyrirtækið viðurkenni enga greiðsluskyldu í málinu og bætti við að málið væri með ólíkindum. Þotan hafi verið notuð í leiguverkefni í Karabíska hafinu síðustu fjóra mánuðina áður en WOW air varð gjaldþrota og því hafi hún ekki verið í rekstri sem hefði búið til lendingargjöld eða önnur notendagjöld Keflavíkurflugvelli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert