Vill auðvelda hælisleitendum að vinna

Drífa Snædal forseti ASÍ segir í forsetapistli sínum á vef …
Drífa Snædal forseti ASÍ segir í forsetapistli sínum á vef ASÍ það að jaðarsetja hópa í samfélaginu sé ávísun á misklíð og reiði, sem spretti af vanmætti. mbl.is/Valli

„Fólk er eins alls staðar í heiminum. Það vill vinna fyrir sér, njóta lífsins og búa í friði. Því miður er hópur hér á landi sem nýtur ekki þessara réttinda og er gert mjög erfitt fyrir að sækja vinnu. Það eru hælisleitendur sem flestir þrá að vinna fyrir sér og finna mennskuna sem fylgir því að vera hluti af samfélagi. Þetta er viðkvæmur hópur og það eru mýmörg dæmi um að atvinnurekendur nýti sér neyð þessa hóps og fái þá í svarta vinnu,“ skrifar Drífa Snædal forseti ASÍ í pistli sem birtur er á vef sambandsins í dag.

Hún segir að það sé öllum í hag, bæði samfélaginu og hælisleitendum, að einfalda reglur sem varða atvinnuþátttöku þeirra sem koma hingað og sækja um alþjóðlega vernd.

„Að jaðarsetja hópa í samfélaginu, hvort sem það eru hælisleitendur eða aðrir hópar er ávísun á misklíð og reiði sem sprettur af vanmætti. Við getum gert betur þegar kemur að jaðarsettum hópum, hvort sem það eru öryrkjar eða fólk sem kemur hingað í leit að betra lífi. Það var því einstaklega ánægjulegt að fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík skyldi gefa rými fyrir ávarp formanns Öryrkjabandalagsins á baráttufundinum á Ingólfstorgi 1. maí,“ skrifar Drífa einnig.

Félagsleg virkni fari vaxandi

Sjálf segir hún í pistlinum að hún hafi notið þeirrar ánægju að vera ræðumaður á hátíðarhöldunum 1. maí á Akureyri.

„Síðustu 7 ár hef ég fengið að halda ræðu hér og þar um landið á baráttudegi verkalýðsins og get vottað að baráttuandi og félagsleg virkni er mikil um allt land og fer vaxandi. Það er einstakt á 1. maí að finna vinnandi fólk um allan heim sameinast í kröfum um aukinn jöfnuð og betri kjör, fyrir velferð og gegn sérhagsmunum fjármagnseigenda,“ skrifar Drífa.

Óskar iðnaðarmönnum til hamingju

Drífa óskar einnig iðnaðarmönnum til hamingju með nýgerða kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins og segir að nú séu nær öll félög innan ASÍ búin að gera að samninga á almenna vinnumarkaðnum.

„Þrjú félög með beina aðild að ASÍ eiga einnig eftir að ganga frá kjarasamningi: Leiðsögn – stéttarfélag leiðsögumanna, Flugfreyjufélag Íslands og Mjólkurfræðingafélag Íslands. Auk þess losna samningar sjómanna ekki fyrr en 1. desember á þessu ári. Það er því ýmislegt eftir enn,“ skrifar Drífa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert