830 kepptu í Fossavatnsgöngunni

Sigurvegarar 50 km göngu kvenna í dag.
Sigurvegarar 50 km göngu kvenna í dag. Ljósmynd/Fossavatnsgangan

Allt hefur gengið eftir óskum, segja skipuleggjendur Fossavatnsgöngunnar. Gangan fór fram í dag á Ísafirði og alls lögðu 830 keppendur af stað. Það má segja að veðrið hafi leikið við keppendur þrátt fyrir nokkuð snjóleysi.

Marine Dusser frá Frakklandi náði sigri í 50 km göngu kvenna, Sanna Soudunaari frá Finnlandi öðru sæti og Caitlin Gregg frá Bandaríkjunum þriðja.

Sigurvegari í 50 km göngu karla er Morten Eide Pedersen frá Noregi, Alexis Jeannerod frá Frakklandi hlaut annað sæti og í þriðja sæti var Iivo Niskanen frá Finnlandi.

Sigurvegarar 50 km göngu karla.
Sigurvegarar 50 km göngu karla. Ljósmynd/Fossavatnsgangan
Ljósmynd/Fossavatnsgangan
Ljósmynd/Fossavatnsgangan



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert