Ljúki uppbyggingu ofanflóðavarna

Snjóflóðavarnir við Tröllagil í Norðfirði.
Snjóflóðavarnir við Tröllagil í Norðfirði.

Þrettán einstaklingar, sem allir hafa komið að hættumati og uppbyggingu varna gegn snjóflóðum og skriðuföllum á undanförnum árum og áratugum, hafa sent frá sér áskorun til stjórnvalda um að ljúka sem fyrst uppbyggingu ofanflóðavarna.

„Fjárhagslega og tæknilega virðist raunhæft að ljúka þeim framkvæmdum sem eftir standa fyrir árið 2030 ef fljótlega verður hafist handa við framkvæmdir, sem undirbúnar hafa verið. Samtímis yrði unnið að undirbúningi framkvæmda sem skemmra eru á veg komnar í samvinnu sveitarfélaganna sem um ræðir og annarra stjórnvalda.“

Þetta sé verðugt verkefni þegar tæpur aldarfjórðungur sé liðinn frá hinum hörmulegu slysum í Súðavík og á Flateyri árið 1995.

„Ekki er viðunandi að meira en hálf öld líði frá þessum slysum þar til fullnægjandi varnir hafa verið reistar fyrir byggð á mestu snjóflóðahættusvæðum landsins þar sem slíkur hægagangur býður heim hættu á mannskæðum slysum í þéttbýli.“

Þeir sem undirrita áskorunina eru:

  • Aðalheiður Borgþórsdóttir, bæjarstjóri Seyðisfjarðarkaupstaðar
  • Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga
  • Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Fjallabyggðar
  • Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar
  • Halldór Halldórsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og fulltrúi í ofanflóðanefnd
  • Harpa Grímsdóttir, hópstjóri ofanflóðavöktunar á Veðurstofu Íslands
  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar
  • Kristín Martha Hákonardóttir, verkfræðingur og ofanflóðasérfræðingur á Verkís verkfræðistofu
  • Magni Hreinn Jónsson, verkefnisstjóri ofanflóðahættumats á Veðurstofu Íslands
  • Magnús Jónsson, fyrrverandi Veðurstofustjóri
  • Magnús Jóhannesson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri og fyrrverandi formaður ofanflóðanefndar
  • Tómas Jóhannesson, ofanflóðasérfræðingur á Veðurstofu Íslands
  • Trausti Jónsson, veðurfræðingur og fyrrverandi sviðsstjóri á Veðurstofu Íslands
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert