Efling mótmælir hópuppsögnum

Félagsmenn Eflingar í kröfugöngu í mars.
Félagsmenn Eflingar í kröfugöngu í mars. mbl.is/​Hari

Efling stéttarfélag hefur sent hótelstjóranum Árna Val Sólonssyni erindi vegna þess sem Efling segir að séu ólöglegar hópuppsagnir á hótelunum Capital-Inn, City Park Hotel og City Center Hotel sem Árni rekur.

Fram kemur í tilkynningu Eflingar að í lok apríl, skömmu eftir samþykkt nýrra kjarasamninga, hafi Árni sent erindi á allt starfsfólk þar sem þess var krafist að það undirritaði uppsögn á starfskjörum sínum.

Þau gætu valið að vera endurráðin á nýjum launakjörum, hönnuð „með það að markmiði að lækka launakostnað“. Ef þau samþykktu ekki á staðnum var það álitið jafngilda uppsögn. Nokkrum starfsmönnum hefur þegar verið sagt upp á grundvelli þessara afarkosta,“ segir í tilkynningu Eflingar.

„Fullkomlega siðlaust athæfi“

„Þetta er að okkar mati fullkomlega siðlaust athæfi,“ er haft eftir Viðari Þorsteinssyni, framkvæmdastjóra Eflingar. „Við erum nýbúin að undirrita kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins, sem fyrirtæki Árna eru aðilar að. Þeir samningar byggja á því að hækka laun og bæta kjör fólks. Blekið er ekki þornað á samningnum þegar hann reynir svo að svíkja starfsfólk sitt um þær kjarabætur. Þar að auki er ákvæðum laga um hópuppsagnir ekki fylgt.“

Fram kemur að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem hótelstjórinn kemur við sögu Eflingar. Til snarpa orðaskipta kom milli hans og Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, vegna fyrirhugaðrar atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls á meðal starfsmanna hótelsins sem eru í Eflingu í lok febrúar.

Þegar kom að verkfalli þann 22. mars urðu verkfallsverðir Eflingar vitni að afleiðingum þessarar framkomu hótelstjórans. „Hann tók þar á móti okkur og starfsfólk var þar vinnandi,“ segir Ragnar Ólason, sviðsstjóri kjaramála. „Hann sagði að það kæmi okkur ekki við, þau væru ekki í Eflingu.“ Umrætt starfsfólk vann störf sem heyra undir kjarasamning Eflingar við SA og var því um verkfallsbrot að ræða, segir í tilkynningunni.

Þar er bent á að forsvarsmönnum umræddra hótela hafi verið veittur sjö daga frestur til að bregðast við og draga ólögmætar uppsagnir til baka. Efling áskilur sér allan rétt til launakrafna á hendur hótelunum fyrir hönd starfsfólks í samræmi við lög og kjarasamninga

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert