Humlurnar í hremmingum

Alla jafna lætur húshumlan mest fyrir sér fara á vorin.
Alla jafna lætur húshumlan mest fyrir sér fara á vorin. Ljósmynd/Erling Ólafsson

Humlur í hremmingum, skrifar Erling Ólafsson skordýrafræðingur á facebooksíðu sína, Heimur smádýranna.

Hann segir að alla jafna fljúgi drottningarnar um á þessum tíma árs nývaknaðar af vetrardvalanum, iðnar við að lepja í sig hunangssafa víðireklanna, safna frjókornum þeirra og leggja drög að sumarbúskapnum. Mun minna hafi hins vegar farið fyrir þeim á suðvestanverðu landinu en venjulega og líklegt sé að rigningin samfellda síðastliðið sumar valdi því.

„Í fyrrasumar áttu þernur í erfiðleikum með að fljúga um og afla fanga í rennblautum blómunum. Framleiðsla nýrra haustdrottninga varð af þeim sökum með minnsta móti. Ef minnið er ekki að bregðast þá hefur viðjan oft verið iðnari við að blómgast en þetta vorið. Hún er humlunum í görðum okkar afar mikilvæg sem fyrsta orkulind. Nú er bara að vonast eftir góðri sumartíð svo humlurnar nái að byggja sig upp á ný. Fátt er sumarlegra en suðandi humlur flögrandi á milli blóma í góðviðri,“ skrifar Erling, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert