Málsmeðferðin með öllu óboðleg

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. mbl.is/Kristinn Magnússon

Tekin var ákvörðun á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í morgun að taka þingsályktun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra um samþykkt þriðja orkupakka Evrópusambandsins út úr nefndinni, hafna því að fleiri gestir kæmu fyrir hana og að síðari umræða um tillöguna fari fram í þingsal á morgun.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Miðflokknum. Þar segir ennfremur að tillaga um að taka málið út úr utanríkismálanefnd hafi verið samþykkt með atkvæðum fulltrúa allra flokka í nefndinni nema Miðflokksins. Aðeins sé gefinn einn dagur til þess að leggja fram minnihlutaálit sem sé óeðlilega skammur tími í jafn stóru máli.

Ætlunin að þröngva málinu í gegn

„Það er skoðun þingmanna Miðflokksins að málsmeðferðin sé með öllu óboðleg. Hér er um að ræða afar þýðingarmikið mál sem varðar mikla þjóðarhagsmuni. Nefnd er tekur slíkt mál til umfjöllunar ber að kynna sér sjónarmið allra þeirra er þekkingu hafa á slíkum málum, annað er Alþingi lítt til sóma,“ segir ennfremur í tilkynningunni og áfram:

„Það má ljóst vera að ætlunin er að þröngva málinu í gegnum Alþingi á sem skemmstum tíma þrátt fyrir að málið valdi mörgum áhyggjum og mikil andstaða sé við það meðal þjóðarinnar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert