18 stiga hita spáð næstu daga

Kort/Veðurstofa Íslands

Framan af degi má búast við ákveðinni austlægari átt með vætu sunnan og vestan til á landinu en síðdegis lægir með suðlægari áttum og styttir alveg upp í kvöld. Síðan taka við mildar og á köflum hlýjar suðlægar áttir, meira og minna út vikuna. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

„Hins vegar er það svo að þegar svo hlýtt loft kemur yfir landið úr suðri eða suðaustri þá fylgir nær undantekningalaust hár loftraki sem þéttist síðan í rigningu eða súld. Í þetta sinn er úrkoman fremur lítil en lengst af verður skýjað. Hlémegin fjalla, eins og í þessu tilfelli um norðanvert landið, verður hins vegar þurrt og mun bjartara og eins og svo oft áður hlýnar meira þar. Hitatölur 12 til 18 stig þar verða algengar að deginum næstu daga en yfirleitt eitthvað svalara syðra,“ segir á vef Veðurstofu Íslands.

Spáin næstu daga

Suðaustan 8-15 og rigning með morgninum, einkum S- og V-lands. Sunnan 5-13 og úrkomulítið síðdegis. Hiti 7 til 14 stig í dag, hlýjast á N-landi.
Bætir heldur í vind og úrkoma S- og V-til á morgun og hiti 8 til 18 stig, svalast við SA- og A-ströndina.

Á þriðjudag og miðvikudag:

Sunnan og suðaustan 8-13 m/s, skýjað og dálítil rigning öðru hverju S- og V-lands. Hægari vindur og bjart með köflum á N- og A-landi. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast norðan heiða. 

Á fimmtudag:
Sunnan 3-8 og víða léttskýjað N- og A-lands, en skúrir á S- og V-landi. Hiti breytist lítið. 

Á föstudag, laugardag og sunnudag:
Austlæg átt og víða léttskýjað á NA-verðu landinu, annars skýjað með köflum og stöku skúrir. Hiti 9 til 18 stig, hlýjast á NA-landi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert