Menntamálaráðherra fundar um vísindi norðurslóða

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra á fundi með Masahiko Shibayama …
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra á fundi með Masahiko Shibayama mennta- og vísindamálaráðherra Japans. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra fundar með Masahiko Shibayama mennta- og vísindamálaráðherra Japans í dag, en Ísland og Japan munu á næsta ári standa sameiginlega að alþjóðlegum ráðherrafundi um vísindi norðurslóða.

Greint er frá þessu í frétt á vef Stjórnarráðsins, en vilji er sagður vera til þess að efla tengsl Íslands og Japans á sviði mennta- og vísindamála. Var því ákveðið á fundinum að hefja vinnu við gerð rammasamkomulags um rannsókna- og vísindasamstarf íslenskra og japanskra háskóla.

„Vísindamálaráðherrar frá ýmsum löndum munu taka þátt í ráðherrafundinum um málefni norðurslóða sem haldinn verður í Tókýó í nóvember 2020. Það er virkilega ánægjulegt að eiga samstarf um fundinn við japönsk stjórnvöld og ég átti góðan og árangursríkan fund með Shibayama samstarfsráðherra mínum hér. Það er brýn þörf á auknu alþjóðlegu samstarfi  um rannsóknir á norðurslóðum og ráðherrafundirnir eru mikilvægur vettvangur fyrir það samtal sem við þurfum til að ná utan um sameiginlegar áskoranir okkar. Við þurfum að þekkja stefnu, áherslur og innviði samstarfsríkja til þess að þróa árangursríka samvinnu á sviði vísinda og rannsókna, ekki síst í samhengi við hlýnun á norðurslóðum,“ er haft eftir Lilju í fréttinni.

Fyrsti ráðherrafundur um vísindi norðurslóða var haldinn að frumkvæði Bandaríkjanna árið 2016 í Washington. Annar fundur fór fram í Berlín á síðasta ári og var hann skipulagður í samstarfi Þýskalands, Finnlands og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Fundurinn í Tókýó, á næsta ári, verður því þriðji fundur vísindamálaráðherranna um málefni norðurslóða, ASMIII (e. Arctic Science Ministerial 2020).  

Ráðherra fundaði einnig með Yoko Kamikawa, framkvæmdastjóra norðurslóðanefndar japanska þingsins, Shinako Tsushiya, formanni vinafélags Íslands á japanska þjóðþinginu, og heimsótti höfuðstöðvar Sasakawa-stofnunarinnar og hafrannsóknarstofnunarinnar OPRI (e. The Ocean Policy Research Institute).

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert