Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, er í opinberri heimsókn í Svíþjóð sem hófst í gær og lýkur á morgun og er í boði Andreasar Norlén, forseta sænska þingsins. Með forseta í för eru varaforsetarnir Þorsteinn Sæmundsson og Bryndís Haraldsdóttir, ásamt Helga Bernódussyni, skrifstofustjóra Alþingis, og Jörundi Kristjánssyni, forstöðumanni forsetaskrifstofu. Þetta kemur fram á vef Alþingis.
Í dag eru á dagskrá heimsóknarfundir með utanríkisráðherra Svíþjóðar, Margot Wallström, Ibrahim Baylan viðskiptaráðherra og Ann Linde, ráðherra utanríkisviðskipta og samstarfsráðherra Norðurlanda. Jafnframt heimsækir forseti Alþingis og sendinefndin ráðhús Stokkhólms og fundar þar með forseta borgarstjórnar, Ceciliu Brinck.
Í upphafi heimsóknarinnar gekk Steingrímur á fund Karls Gústafs XVI Svíakonungs og að því loknu heimsóttu forseti Alþingis og sendinefndin sænska þingið, Riksdagen, og sátu fundi með forseta sænska þingsins og þingmönnum úr utanríkismálanefnd, fjárlaganefnd, stjórnskipunarnefnd og efnahagsnefnd sænska þingsins. Einnig var fundur með vinnuhópi sænska þingsins um jafnréttismál, undir forustu Lottu Johnsson, 2. varaforseta.
Á síðasta degi heimsóknarinnar, fimmtudag, heimsækir forseti Alþingis Uppsali og mun þar sækja Göran Enander landshöfðingja heim til fundar. Þá munu Steingrímur J. Sigfússon og sendinefndin eiga hádegisverðarfund með Agnetu Ney, formanni Íslandsfélagsins sem fagnar 70 ára afmæli í ár, og Veturliða Óskarssyni, prófessor í norrænum málvísindum.