Ný dagdvalarrými opnuð fyrir heilabilaða

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra voru meðal …
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra voru meðal þeirra sem klipptu á borða við opnunina. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Ný dagdvöl ætluð heilabiluðum með aðstöðu fyrir 30 einstaklinga hefur verið opnuð í Hrafnistu í Laugarási. Aðstöðunni var komið á fót með breytingum á húsnæði sem ekki var lengur hægt að nýta til reksturs hjúkrunarrýma.

Nýja dagdvalardeildin er kölluð Viðey og dregur heiti sitt af fallegu útsýni út á Sundin þar sem Viðey blasir við. Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistu segir að vegna langra biðlista eftir dagdvalarrýmum fyrir heilabilaða á höfuðborgarsvæðinu sé deildin kærkomin viðbót við þá faglegu þjónustu sem einstaklingar með heilabilun þurfi á að halda.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fagnaði frumkvæði stjórnenda Hrafnistu í ávarpi sem hún flutti við vígsluhátíðina á Hrafnistu í gær, þar sem fjöldi fólks kom saman til að fagna opnun deildarinnar.

Svandís lagði áherslu á mikilvægi stoðþjónustu við aldraða sem væri ekki síður mikilvæg en hjúkrunarheimilin sjálf og sérstaklega væri dagdvöl mikilvæg þjónusta fyrir fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra. 

„Hér hafa stjórnendur Hrafnistu séð ný tækifæri í húsnæði sem samkvæmt nútíma kröfum var ekki lengur til þess fallið að hýsa hjúkrunarrými. Það er einmitt það hugarfar sem við þurfum á að halda nú þegar við munum á fáeinum áratugum þurfa að aðlagast breyttri aldurssamsetningu þjóðarinnar sem aðrar þjóðir hafa haft mun lengri tíma að aðlagast. Við þurfum að sjá tækifærin í núverandi stöðu til að útfæra hvernig við getum á sem bestan hátt mætt þörfum aldraðra fyrir þjónustu, innan sem utan stofnana“ sagði heilbrigðisráðherra meðal annars í ávarpi sínu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert