Upplýsingavefurinn Heilsuvera hefur haft merkjanleg áhrif á samskipti og heimsóknir á heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu síðustu árin. Frá því vefurinn var tekinn í notkun árið 2014 hefur notkun hans farið sívaxandi og á árið 2018 voru liðlega 65 þúsund erindi afgreidd í gegnum Heilsuveru og rafrænum fyrirspurnum til heilsugæslunnar fjölgaði um hátt í 17 þúsund milli áranna 2017 og 2018.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
Þar segir enn fremur að á sama tíma hafi hefðbundnum viðtölum á heilsugæslustöðvum fækkað um liðlega 3.500 milli áranna 2017 og 2018 og símtölum fækkað um hátt í 24 þúsund.
Vefurinn heilsuvera.is er samstarfsverkefni Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Embættis landlæknis. Vefnum er ætlað að koma á framfæri til almennings áreiðanlegum upplýsingum um heilsu, þroska og áhrifaþætti heilbrigðis, ásamt því að opna aðgengi einstaklinga inn á eigin sjúkraskrá og gera fólki mögulegt að vera í sambandi við heilsugæsluna sína í gegnum netið.
Í tilkynningu segir að þjónusta heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hafi verið í stöðugri þróun undanfarin ár og vefurinn, heilsuvera.is, sé meðal annars afrakstur þeirrar vinnu.