Lögreglan á Suðurnesjum hefur á undanförnum dögum kært nær þrjátíu ökumenn fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók mældist á 149 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Um var að ræða erlendan ferðamann.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Þar segir að á annan tug ökumanna hafi verið teknir úr umferð vegna gruns um vímuefnaakstur.
Fimm ökumenn voru stöðvaðir þar sem þeir óku á nagladekkjum og skráningarnúmer voru fjarlægð af sjö bifreiðum sem voru óskoðaðar eða ótryggðar.