Litríkt risaskip er væntanlegt

Norwegian Getaway er í skrautlegra lagi.
Norwegian Getaway er í skrautlegra lagi.

Í þessari viku eru væntanleg til Reykjavíkur tvö sannkölluð risaskip, skemmtiferðaskip af stærri gerðinni. Þau heita MSC Preziosa og Norwegian Getaway.

MSC Preziosa hefur komið hingað áður. Það er 139.072 brúttótonn og er væntanlegt að Skarfabakka á Sundahöfn á fimmtudag klukkan 11. Skipið tekur 3.052 farþega og í áhöfn eru 1.390 manns, að því er fram kemur um skipakomur þessar í Morgunblaðinu í dag.

Norwegian Getaway er væntanlegt að Skarfabakka klukkan 12 á föstudaginn. Það er 145.655 brúttótonn. Skipið tekur 3.929 farþega og í áhöfn þess eru 1.595 manns. Bæði skipin stoppa í Reykjavík yfir nótt. MSC Preziosa á ekki að láta úr höfn fyrr en klukkan 18 á föstudag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert