Gróðursetti tré með skólabörnum

„Við komum hingað fyrir jörðina okkar af því að við …
„Við komum hingað fyrir jörðina okkar af því að við erum að reyna að hugsa vel um hana,“ segja þau Elísabet Marta Jónasdóttir og Alexander Guðmundsson, nemendur í Grunnskólanum í Þorlákshöfn sem eru hér með Guðmundi Inga Guðbrandssyni umhverfis- og auðlindaráðherra.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, tók ásamt hópi grunnskólabarna í dag þátt í að gróðursetti trjáplöntur í Þorláksskógum á Suðurlandi, en börnin taka þátt í fræðslu- og gróðursetningarverkefni Yrkjusjóðs.

Tilefni gróðursetningarinnar var að Yrkjusjóður, Skógræktin og Landgræðslan hafa undirritað samstarfsyfirlýsingu um aukna gróðursetningu grunnskólabarna og fræðslu fyrir þau um samspil kolefnisbindingar, landnotkunar og loftslagsmála, að því er segir í frétt á vef Stjórnarráðsins. Er verkefnið liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum og fellur undir áherslur er lúta að kolefnisbindingu og aukinni fræðslu.

„Yrkjusjóður hefur gert börnum um allt land kleift að taka þátt í að binda kolefni úr andrúmslofti. Með því að efla verkefnið geta enn fleiri börn tekið þátt í að takast á við eina stærstu áskorun þessarar aldar, loftslagsvána. Verkefnið felur jafnframt í sér endurheimt birkiskóga og lífríkis landsins sem stjórnvöld leggja nú stóraukna áherslu á,“ er haft eftir Guðmundi Inga í fréttinni.

„Við komum hingað fyrir jörðina okkar af því að við erum að reyna að hugsa vel um hana. Mengunin er alltaf að verða meiri og meiri og það er gott fyrir jörðina að planta trjám,“ var haft eftir þeim Elísabetu Mörtu Jónasdóttur og Alexander Guðmundssyni, nemendum í Grunnskólanum í Þorlákshöfn.

Yrkja – sjóður æskunnar til ræktunar landsins (Yrkjusjóður) var stofnaður í tengslum við afmæli frú Vigdísar Finnbogadóttur og var fyrsta úthlutun úr sjóðnum árið 1992. Markmið sjóðsins er að kosta trjáplöntun grunnskólabarna á Íslandi og kynna þannig mikilvægi skógræktar og ræktunar almennt fyrir unga fólkinu í landinu.

Yrkja á í formlegu samstarfi við alla grunnskóla í landinu og frá stofnun sjóðsins hafa grunnskólabörn gróðursett nærri 800 þúsund trjáplöntur á hans vegum. Ætla má að verkefnið hafi bundið um 20.000 tonn af CO2.

Umhverfisráðherra og krakkar gróðursettu fallegar birkiplöntur í Þorláksskógum í dag.
Umhverfisráðherra og krakkar gróðursettu fallegar birkiplöntur í Þorláksskógum í dag. Ljósmynd/Stjórnarráðið
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert