Átján ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan 17 í gær þangað til fimm í morgun. Einn var tekinn fyrir ölvunarakstur á Akureyri. Annars var nóttin með rólegra móti að sögn lögreglu víða um land.