44 ölvaðir ökumenn stöðvaðir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði 44 ökumenn um helgina vegna ölvunar- …
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði 44 ökumenn um helgina vegna ölvunar- og fíkniefnaaksturs. mbl.is/Eggert

44 ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Frá þessu greinir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu. 

34 voru stöðvaðir í Reykjavík, fimm í Kópavogi, þrír í Mosfellsbæ og tveir í Hafnarfirði. Þrír voru teknir á föstudagskvöld, 26 á laugardag, 14 á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags.

38 ökumannanna eru karlar á aldrinum 17-61 árs og sex konur, 17-60 ára. Átta þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og sjö hafa aldrei öðlast ökuréttindi.

Í tveimur málanna voru ökumenn sviptir ökuleyfi til bráðabirgða eftir afskipti lögreglu, vegna ítrekaðra umferðarlagabrota viðkomandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert