Óvissustigi aflýst vegna Öræfajökuls

Óvissuástandi almannavarna vegna aukinnar virkni í Öræfajökli hefur verið aflýst.
Óvissuástandi almannavarna vegna aukinnar virkni í Öræfajökli hefur verið aflýst. mbl.is/RAX

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi, hefur ákveðið að aflýsa óvissustigi almannavarna vegna aukinnar virkni í Öræfajökli, en óvissustigi var lýst yfir þann 17. nóvember 2017 vegna aukinnar jarðskjálftavirkni í fjallinu, flóða í Kvíá og brennisteinslyktar frá henni, auk myndunar sigketils.

Þessi ákvörðun er tekin í ljósi eftirfarandi upplýsinga, sem lögreglan á Suðurlandi kemur á framfæri á Facebook-síðu sinni:

Jarðskjálftavirkni: 
Vikulegur fjöldi jarðskjálfta í Öræfajökli hefur verið undir 20 frá því í febrúar á þessu ári. Flestar vikur á þessu tímabili hafa jarðskjálftar verið færri en 10 sem er mun minni virkni en misserin þar á undan. Jarðskjálftar stærri en 2.0 hafa ekki orðið í Öræfajökli frá því í febrúar og frá svipuðum tíma hefur losuð orka í skjálftum lítið vaxið.

Landris: 
Hægt hefur á landrisi eða þenslu af völdum kvikuhreyfinga og merki um landris sem sést á GPS mælistöðvum í grennd við Öræfajökul virðist fyrst og fremst stafa af fargbreytingum vegna rýrnunar jökla.

Rennsli í ám og leiðni: 
Á undanförnum mánuðum hefur rennsli í ám umhverfis Öræfajökul verið í góðu samræmi við úrkomu og lofthita, ekki hefur orðið vart við jarðhitavatn í Kotá, Kvíá og Virkisá. Rafleiðni í þessum ám hefur einnig verið innan eðlilegra marka.

Vöktunarkerfi: 
Þegar órói hófst í Öræfajökli haustið 2017 var net vöktunarmæla á svæðinu þétt til muna. Jarðskjálftamælum og GPS tækjum sem nema jarðskorpuhreyfingar var fjölgað og rennslis- og leiðnimælum í ám var komið upp.

Allir þessir mælar streyma gögnum til Veðurstofu Íslands þar sem náttúruvársérfræðingar Veðurstofunnar fylgjast með gögnunum allan sólarhringinn. Bætt vöktunarkerfi eykur líkurnar á því að hægt sé að vara við yfirvofandi eldgosi í tíma og rekstur slíks kerfis í byggð sem stendur svo nærri eldfjalli er lífsnauðsyn.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert