Auður og Kristján hljóta nýræktarstyrk

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, afhenti Auði Stefánsdóttur og …
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, afhenti Auði Stefánsdóttur og Kristjáni Hrafni Guðmundssyni nýræktarstyrki Miðstöðvar íslenskra bókmennta fyrir árið 2019 í dag. Ljósmynd/Aðsend

Auður Stefánsdóttir og Kristján Hrafn Guðmundsson hljóta nýræktarstyrki Miðstöðvar íslenskra bókmennta í ár.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, afhenti styrkina við athöfn í Gunnarshúsi, húsi Rithöfundasambandsins, í dag. Nýræktarstyrkir eru veittir árlega vegna skáldverka höfunda sem eru að stíga sín fyrstu skref á ritvellinum, óháð aldri, og til að hvetja þá til frekari dáða á þeirri braut. Átt er við skáldverk í víðri merkingu; sögur, ljóð, leikrit og fleira.  

Auður hlýtur styrkinn fyrir barnabókina Í gegnum þokuna og Kristján Hrafn Guðmundsson fyrir smásagnasafnið Afkvæni. Hvor styrkur nemur 500.000 kr.

Fantasíubók fyrir börn um baráttu góðs og ills

Auður er fædd árið 1983 og er með BA gráðu í íslensku og meistaragráðu í íslenskum bókmenntum frá Háskóla Íslands og kennsluréttindi á framhaldsskólastigi. Auður er íslenskukennari í framhaldsskóla og er í meistaranámi í ritlist við Háskóla Íslands meðfram kennslu.

Í umsögn bókmenntaráðgjafa um Í gegnum þokuna segir meðal annars: „Í gegnum þokuna er fantasíubók fyrir börn um baráttu góðs og ills, dauðann og lífið. Höfundur tekur á viðkvæmu málefni á fágaðan hátt og fléttar saman við spennandi atburðarás á flöktandi mörkum raunveruleika og ímyndunar. Textinn er skýr og aðgengilegur, lýsingar á handanheiminum hugmyndaríkar og margar skemmtilegar skírskotanir í hvernig er að vera krakki á Íslandi í dag.”

Grípandi sögur og skarpar persónulýsingar

Kristján Hrafn er fæddur árið 1979 og er bókmenntafræðingur með kennsluréttindi og kennir íslensku, heimspekisamræðu og kvikmyndalæsi í grunnskóla. Kristján þýddi bók Haruki Murakami Það sem ég tala um þegar ég tala um hlaup og hafði umsjón með menningarumfjöllun DV 2007–2010.

Í umsögn bókmenntaráðgjafa um Afkvæni segir meðal annars: „Afkvæni er safn smásagna sem eiga það sameiginlegt að gerast í hversdagslegum íslenskum samtíma. Sögurnar eru grípandi, persónulýsingar skarpar og textinn er skrifaður á blæbrigðaríku máli. Smávægilegum atvikum er gjarnan lýst á spaugilegan hátt; andrúmsloftið er létt og leikandi en um leið tekst höfundi að miðla samspili gleði og alvöru af sérstakri næmni.”

Að vali Nýræktarstyrkhafa standa bókmenntaráðgjafar Miðstöðvar íslenskra bókmennta, sem í ár eru þau Þórdís Edda Jóhannesdóttir og Bergsteinn Sigurðsson. Þetta er í tólfta sinn sem Nýræktarstyrkjum er úthlutað, en alls hafa á sjötta tug höfunda hlotið þessa viðurkenningu frá upphafi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert