Leggst alfarið gegn undirritun

Seltjarnarnes.
Seltjarnarnes. mbl.is/Sigurður Bogi

Stjórn Sjálfstæðisfélags Seltirninga leggst alfarið gegn undirritun samninga af hálfu Seltjarnarnesbæjar varðandi borgarlínu.

Tekur hún þar með undir með Magnúsi Erni Guðmundssyni, forseta bæjarstjórnar og formanni bæjarráðs, um efnið, að því er segir í bókun stjórnarinnar. 

Fram kemur að fjárhagslegar forsendur vegna verkefnisins liggi ekki ekki fyrir og hafi ekki verið kynntar grasrót flokksins.

„Undirritun samninga um Borgarlínu er á skjön við stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi en þar segir m.a. „Lögð verði megináhersla á frekari eflingu Strætó, engin ákvörðun verði tekin varðandi Borgarlínu fyrr en forsendur um heildarkostnað og rekstur liggja fyrir. Afkastageta og þjónustustig annarrar umferðar má ekki minnka á kostnað aukins rýmis fyrir almenningssamgöngur“,“ segir í bókuninni.

Stjórnin vonast til að kjörnir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi skrifi ekki undir samninginn. „Afar mikilvægt er að staðið sé við gefin loforð við kjósendur flokksins. Ákvörðun um þátttöku Seltjarnarnesbæjar í Borgarlínuverkefninu ber vott um ábyrgðarleysi gagnvart skattfé.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert