Stórar framkvæmdir við Reykjanesbraut

Framkvæmdir eru í fullum gangi hjá Veitum.
Framkvæmdir eru í fullum gangi hjá Veitum. Kort/Veitur

Veitur vinna nú að endurnýjun lagna frá Reykjanesbraut við Sprengisand í gegnum Elliðaárdalinn og upp með Rafstöðvarvegi.

Verið er að endurnýja fráveitulagnir, kaldavatnslagnir, hitaveitulagnir, raflagnir ásamt fjarskiptalögnum Gagnaveitu Reykjavíkur og Mílu, að því er segir í tilkynningu frá Veitum.  

Fyrstu fjórir áfangar verksins eru nú í gangi beggja vegna Reykjanesbrautar, frá Bústaðavegi að Vesturlandsvegi. Framkvæmdunum fylgir nokkuð rask og sjást þær vel frá tveimur af umferðarþyngstu götum borgarinnar; Reykjanesbraut og Vesturlandsvegi.

Þegar lagnirnar verða lagðar undir að- og fráreinar Miklubrautar/Reykjanesbrautar verður reynt að halda truflunum á umferð í lágmarki en ekki er talið að koma þurfi til lokana. Hið sama á við þegar lagnir verða lagðar undir Reykjanesbrautina síðar í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert