Óttast að fyrirtækjum í laxeldi verði mismunað

Sjókvíar. Frumvarp um breytingar á fiskeldislögum liggur nú fyrir Alþingi.
Sjókvíar. Frumvarp um breytingar á fiskeldislögum liggur nú fyrir Alþingi. mbl.is/Guðlaugur Albert

„Þetta er stórt högg fyrir framtíðaráform okkar, ef af verður,“ segir Kjartan Ólafsson, stjórnarformaður Arnarlax hf., spurður um fyrirhugaðar breytingar á meðferð leyfisumsókna um sjókvíaeldi í Morgunblaðinu í dag.

Samkvæmt heimildum blaðsins hefur meirihluti atvinnuveganefndar Alþingis sett fram drög að breytingartillögu, þar sem lagt er til að miðað verði við að umsækjendur um rekstrarleyfi fyrir sjókvíaeldi hafi skilað inn frummatsskýrslu í ferli Skipulagsstofnunar við mat á umhverfisáhrifum til að umsóknir þeirra haldi gildi sínu, en að aðrar umsóknir sem skemmra eru á veg komnar falli niður.

Í umfjöllun  um mál  þetta í Morgunblaðinu í dag segir Kjartanr að áhrif þessa gætu orðið umtalsverð fyrir Arnarlax, en verði tillagan að lögum í óbreyttri mynd myndi það þýða að leyfisumsókn fyrirtækisins fyrir stækkun núverandi reksturs í Arnarfirði um 4.500 tonn, sem og umsókn fyrirtækisins til að hefja rekstur laxeldis upp á 10.000 tonn í Ísafjarðardjúpi, muni falla niður. „Þetta krefst endurskipulagningar á uppsetningu fyrirtækisins,“segir Kjartan, en Arnarlax er með 110 manns í vinnu sem stendur.

Kjartan segir að sér hefði þótt það eðlilegra ef tillagan innihéldi 18-24 mánuða lagaskilaákvæði þannig að þau fyrirtæki sem frumvarpið snerti gætu brugðist við.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert