Snjókomu spáð í dag

Kort/Veðurstofa Íslands

Búast má við slyddu eða snjókomu á norðanverðu hálendinu í dag en einnig á heiðum á norðaustanverðu landinu, að því er fram kemur á vef Veðurstofu Íslands.

„Í dag er útlit fyrir norðlæga átt, 5-13 m/s. Líkur eru á skúrum um mest allt land en þurrt og bjartara yfir á vestanverðu landinu. Nú er að kólna lítillega og hitinn ekki mikið yfir frostmarki á Norðausturlandi að næturlagi og mögulega verður úrkoma í formi slyddu eða snjókomu á heiðum norðaustan til í dag.

Útlit vikunnar er keimlíkt, ekki jafn mikið um tveggja stafa hitatölur og hefur verið, úrkoma fyrir norðan og austan en þurrt vestan til. Helgin lítur ágætlega út. Bjartara veður á mest öllu landinu, hægur vindur og hiti 10 til 18 stig, líka á Norður- og Austurlandi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurspá fyrir næstu daga

Norðlæg átt 5-13 m/s, hvassast vestan til. Skýjað og skúrir um mest allt land en þurrt að kalla og bjart að mestu um landið vestanvert. Léttir til á Suðurlandi þegar líður á daginn. Heldur hægari vindur á morgun. Hiti 4 til 14 stig, svalast fyrir norðan.

Á miðvikudag og fimmtudag:
Norðan 5-10 m/s og lítils háttar súld eða rigning norðan- og austanlands og hiti 2 til 9 stig, en annars skýjað með köflum, yfirleitt þurrt og hiti 7 til 13 stig. 

Á föstudag (sumarsólstöður):
Norðlæg átt 5-10 m/s. Rigning norðaustan og austan til á landinu, en annars skýjað með köflum og þurrt. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast á Suðurlandi. 

Á laugardag:
Fremur hæg vestlæg eða breytilega átt. Skýjað með köflum og stöku síðdegisskúrir. Hlýnar í veðri. 

Á sunnudag og mánudag:
Útilt fyrir hæga suðvestlæga eða breytilega átt. Bjart með köflum og hiti 10 til 18 stig á öllu landinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert