Hæstiréttur metur deilu ALC og Isavia

TF-GPA hefur verið kyrrsett á Keflavíkurflugvelli frá 18. mars.
TF-GPA hefur verið kyrrsett á Keflavíkurflugvelli frá 18. mars. Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson

Flugvélaleigufyrirtækið ALC hefur fengið leyfi til þess að kæra úrskurð Landsréttar í máli Isavia gegn fyrirtækinu til Hæstaréttar. Þetta kemur fram á vef Hæstaréttar.

Með úrskurði Landsréttar var kröfum ALC, um að fá afhenta farþegaþotu í eigu fyrirtækisins sem WOW air hafði haft til umráða, hafnað. Þotan stendur á Keflavíkurflugvelli og hefur verið þar allt frá falli flugfélagsins í lok mars.

Málið snýst um það hvort Isa­via hafi verið heim­ilt að taka veð í farþegaþotunni vegna van­gold­inna gjalda WOW air upp á um 2 millj­arða króna eða hvort ein­ung­is hafi verið hægt lög­um sam­kvæmt að krefjast þeirra gjalda sem bein­lín­is tengj­ast notk­un þot­unn­ar.

ALC byggði beiðni sína um kæruleyfi á því að úrskurður Landsréttar væri bersýnilega rangur þar sem Isavia hefði ekki haft lögvarða hagsmuni af því að fá úrskurð héraðsdóms í málinu endurskoðaðan í heild.

Þá vísuðu lögmenn ALC til þess í málskotsbeiðninni að það hefði almennt gildi fyrir flugrekendur og eigendur loftfara að fá úr því skorið hvort niðurstaða Landsréttar um skýringu 1. mgr. 136. gr. laga nr. 60/1998 væri rétt.

Umsókn ALC um kæruleyfi var tekin til greina þar sem talið var að úrlausn um þessi tvö atriði myndi hafa fordæmisgildi.

Ákvörðun Hæstaréttar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert