Segir Willum fara með rangt mál

Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Sam­fylk­ing­ar og nefnd­armaður í fjár­laga­nefnd, segir …
Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Sam­fylk­ing­ar og nefnd­armaður í fjár­laga­nefnd, segir formann fjárlaganefndar hafa farið með rangt mál þegar hann sagði að trúnaður hefði verið á breytingartillögum ríkisstjórnarinnar á fjármálaáætlun næstu fjögurra ára. mbl.is/​Hari

Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Sam­fylk­ing­ar og nefnd­armaður í fjár­laga­nefnd, seg­ir í færslu á Face­book-síðu sinni að það hafi verið ótrúlegt að hlusta á formann fjárlaganefndar fara með rangt mál og ósannindi þegar hann sagði að trúnaður hefði verið á breytingartillögum ríkisstjórnarinnar á fjármálaáætlun.

Rætt var við Willum Þór Þórsson, formann fjárlaganefndar, í Kastljósi í kvöld og þar sagði hann að ákveðinn nefndarmaður Samfylkingarinnar hefði gengið á trúnað með því að vaða út með tillögur að breyttri fjármálaáætlun.

Willum Þór Þórsson, formaður fjárlaganefndar, sagði í viðtali í Kastljósi …
Willum Þór Þórsson, formaður fjárlaganefndar, sagði í viðtali í Kastljósi í kvöld að ákveðinn nefndarmaður Samfylkingarinnar hefði gengið á trúnað með því að vaða út með tillögur að breyttri fjármálaáætlun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fyrr í dag sagði Ágúst Ólafur að dökk tíðindi séu í breyt­ing­ar­til­lög­um meiri­hluta nefnd­ar­inn­ar við fjár­mála­áætl­un rík­is­stjórn­ar­inn­ar.

Ágúst Ólafur er umræddi nefndarmaðurinn og vísar hann ásökunum á bug. Ágúst Ólafur fullyrðir á Facebook-síðu sinni að trúnaður hafi ekki ríkt yfir breytingartillögum á fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. „Enda hefði það verið fáránlegt að trúnaður hefði verið á breytingartillögum ríkisstjórnarinnar á fjármálaáætlun sem snertir sérhvern einstakling í landinu,“ skrifar Ágúst Ólafur.

Hann segir jafnframt að enn sé margt vont í breytingartillögum fjárlaganefndarinnar. „Og áfram munum við berjast gegn þeim eins og Logi Einarsson réttilega benti svo vel á í Kastljósviðtalinu,“ segir Ágúst Ólafur í færslu sinni sem má lesa í heild sinni hér að neðan:



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert