Eitt leyfisbréf þvert á skólastig

Lög um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við …
Lög um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, svokallað kennarafrumvarp, var samþykkt á Alþingi í gær. mbl.is/Ómar Óskarsson

Svokallað kennarafrumvarp var samþykkt á Alþingi í gær en markmið laganna, sem fjalla um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, er að stuðla að sveigjanlegra skólakerfi – nemendum og kennurum til hagsbóta.

Frumvarpið var samþykkt með 41 greiddu atkvæði en 16 þingmenn sátu hjá. 

Fyrri lög falla úr gildi

Með frumvarpinu er lögfestur hæfnirammi um menntun og hæfni kennara og skólastjórnenda, í takt við alþjóðlega þróun, sem lýsir betur þeirri hæfni sem kennarar þurfa að búa yfir til samræmis við þá ábyrgð sem felst í starfi þeirra, að því er fram kemur í tilkynningu frá Stjórnarráðinu. Við gildistöku laganna falla úr gildi lög um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, nr. 87/2008.

„Við viljum draga fram mikilvægi kennarastarfsins og stuðla að því að þeir sem leggja stund á kennslu- og uppeldisstörf í leik-, grunn-, og framhaldsskólum hafi menntun í samræmi við störf sín og ábyrgð. Þessi nýju lög eru mikilvægt framfaraskref í þá átt,“ er haft eftir Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra í tilkynningu.

Aukin áhersla er í nýju lögunum á starfsþróun kennara og gæði skólastarfs til samræmis við markmið stjórnvalda um að efla starfsumhverfi kennara og stuðla að faglegu sjálfstæði þeirra líkt og kveðið er á um í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.

Í stað leyfisbréfa á þrjú skólastig verður framvegis gefið út eitt leyfisbréf til kennara þvert á skólastig þar sem metin er bæði almenn og sérhæfð hæfni hvers kennara. Ábyrgð skólastjórnenda við mat á hæfni umsækjenda um störf mun því aukast. Þá færist útgáfa leyfisbréfa kennara og veiting undanþága vegna ráðningar leiðbeinenda til Menntamálastofnunar.

Kennararáði komið á fót

Samkvæmt nýju lögunum verður komið á fót kennararáði sem fjalla mun um þróun hæfniramma fyrir menntun kennara og skólastjórnenda. Hlutverk ráðsins verður m.a. að leiðbeina um þau hæfniviðmið sem horfa ber til við skipulag kennaramenntunar, starfsþróunar og ráðninga. Ráðgert er að nemendur sem innritast í kennaranám frá og með skólaárinu 2021–2022 útskrifist af námsbrautum skipulögðum samkvæmt nýjum lögum.

Samkvæmt bráðabirgðaákvæði mun mennta- og menningarmálaráðherra skipa samráðshóp til að fjalla um framkvæmd og innleiðingu nýju laganna en í honum verða fulltrúar leik-, grunn- og framhaldsskóla, Kennarasambands Íslands, skólastjórnenda og menntavísindasviðs Háskóla Íslands og Kennaradeildar Háskólans á Akureyri. Þá hefur ráðherra ákveðið að bjóða fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga sæti í samráðshópnum.

Nánari upplýsingum um nýju lögin og þær breytingar sem þeim fylgja verður miðlað á heimasíðu mennta- og menningarmálaráðuneytisins og vef Kennarasambands Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert