Spá 20 stiga hita fyrir austan

Hitaspáin fyrir sunnudag.
Hitaspáin fyrir sunnudag. Kort/Veðurstofa Íslands

Spáð er björtu og hlýju veðri á Austurlandi í næstu viku en vestanlands verður skýjað og einhver úrkoma. Veðurfræðingur á ekki von á að það rigni nægjanlega til að bleyta almennilega í þurrum gróðri. Spáð er allt að 20 stiga hita á Austurlandi á sunnudag.

„Í dag er útlit fyrir norðan og norðvestan 3-8 m/s. Búast má við skúrum í flestum landshlutum í dag, síst þó vestast á landinu. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast á Suðurlandi. 

Vestan 3-8 á morgun, bjart með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti 10 til 17 stig. Norðlægari með svolítilli rigningu austanlands framan af morgundegi og svalara, en rofar til þar seinnipartinn.

Á sunnudag og fram í miðja næstu viku er útlit fyrir að vestlæg átt verði ríkjandi og hlýr loftmassi færist yfir landið. Það verður þá bjart og hlýtt á austanverðu landinu og kominn tími til, á þeim slóðum hefur verið sólarlítið það sem af er sumri og hiti með lægra móti. Vestanlands verður meira og minna skýjað og einhver væta eftir helgi. Sú væta er líkleg til að vera á formi súldar og ekki rigning nema að litlu leyti. Ekki er víst að úrkomumagnið verði nægjanlegt til að bleyta almennilega í þurrum gróðri eða hressa upp á vatnslitlar laxveiðiár,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands.

Veðurspá fyrir næstu daga

Norðan og norðvestan 3-8 m/s. Skúrir í flestum landshlutum í dag, síst þó vestast á landinu. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast á Suðurlandi. 
Vestan 3-8 á morgun, bjart með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti 10 til 17 stig. Norðlægari og svolítil rigning austanlands framan af degi og svalara, en rofar til þar seinnipartinn.

Á laugardag:

Vestan 3-8 m/s og bjart með köflum. Hiti 10 til 17 stig. Norðlægari og svolítil rigning austanlands framan af degi og svalt í veðri, en rofar til þar seinnipartinn. 

Á sunnudag og mánudag:
Suðvestan 5-10 og víða léttskýjað, en skýjað að mestu vestanlands. Hiti 11 til 20 stig, hlýjast um landið austanvert. 

Á þriðjudag og miðvikudag:
Ákveðin vestanátt. Skýjað á vesturhelmingi landsins og dálítil rigning eða súld af og til. Hiti 10 til 14 stig. Bjartviðri austantil með hita 15 til 22 stig. 

Á fimmtudag:
Norðlæg eða breytileg átt. Líkur á rigningu eða súld í flestum landshlutum. Kólnandi veður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert