Hitinn víða yfir 20 stig

Kort/Veðurstofa Íslands

Nú er allmikil hæð suður af landinu en við Scoresbysund er smálægð sem þokast í norðaustur. Því er ákveðin vestan- og suðvestanátt hjá okkur, með þurrki og hlýindum á austanverðu landinu. Vestanlands er hins vegar súld eða lítils háttar rigning öðru hverju og milt veður, segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. 

„Það er svipað veðurútlit næstu tvo daga og líklegt að hiti fari víða yfir 20 stig á austurhelmingi landsins,“ segir á vef Veðurstofu Íslands.

Veðurspá fyrir næstu daga

Suðvestan 8-15 í dag, hvassast NV-til. Bjart veður á A-verðu landinu og hiti 14 til 22 stig. Súld eða lítils háttar rigning með köflum V-lands, hiti 10 til 14 stig. Svipað veður á morgun.

Á miðvikudag:

Vestan 8-13 og dálítil væta öðru hverju, en þurrt og bjart veður um landið A-vert. Hiti 12 til 22 stig, hlýjast A-til. 

Á fimmtudag:
Suðvestan 5-13 og dálítil rigning V-til, en bjart með köflum A-lands. Hiti breytist lítið. 

Á föstudag:
Suðvestanátt og lítils háttar rigning, þó síst á NA- og A-landi. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast A-lands. 

Á laugardag:
Austanátt og rigning með köflum. Hiti 8 til 17 stig, mildast SV-lands. 

Á sunnudag:
Norðaustanátt og rigning, en úrkomulítið á SV- og V-landi. Kólnandi veður. 

Á mánudag:
Norðlæg átt og skýjað. Hiti 5 til 13 stig, mildast sunnan heiða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert