Bíll valt út af veginum og varð alelda

Lögreglan á Vestfjörðum og slökkviðlið Strandabyggðar voru kölluð út eftir …
Lögreglan á Vestfjörðum og slökkviðlið Strandabyggðar voru kölluð út eftir bílveltu við Arngerðareyri í Ísafjarðardjúpi síðdegis. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bíll valt út af veginum við Arngerðareyri í Ísafjarðardjúpi síðdegis. Bíllinn hafnaði á hliðinni og kviknaði í honum. Tvennt var í bílnum en hvorugt er alvarlega slasað, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðsstjóra Strandabyggðar. 

Fimm slökkviliðsmenn auk lögreglumanna frá lögreglunni á Vestfjörðum eru á vettvangi. Ekki liggur fyrir hvað olli því að bifreiðin fór út af veginum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert