Ökulag olli lögreglu vonbrigðum

Tvö slys á börnum hafa orðið í umferðinni á Hringbraut …
Tvö slys á börnum hafa orðið í umferðinni á Hringbraut á árinu. mbl.is/Árni Sæberg

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur þrisvar í vikunni verið við hraðamælingar á Hringbraut í Reykjavík, en um er að ræða vegkafla á milli Sæmundargötu og Ánanausta þar sem leyfður hámarkshraði var nýverið lækkaður úr 50 í 40 í kjölfar umferðarslyss sem varð á þessum slóðum. Samtals hefur lögreglan myndað um 300 brot ökumanna á þessum stað.

Á einni klukkustund á mánudaginn eftir hádegi voru mynduð brot 100 ökumanna sem óku Hringbraut í austurátt við Furumel.

Á miðvikudaginn var sami hátturinn hafður á og voru þá mynduð brot 76 ökumanna sem óku í vesturátt.

Í dag var lögreglan aftur með eftirlit á sama stað í eina klukkustund og voru þá mynduð brot 122 ökumanna. Samtals er því um að ræða brot 298 ökumanna á tveimur klukkustundum í þessari viku.

Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að á mánudaginn hafi 479 farið um Hringbrautin á þessari akstursleið. Því var brotahlutfallið 21%, en meðalhraði hinna brotlegu var 54 km/klst og sá sem hraðast ók mældist á 67 km/klst hraða.

Á miðvikudaginn fóru 598 ökutæki þessa akstursleið og því var brotahlutfallið 13%, en meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst og sá sem hraðast ók mældist á 64.

Í dag fóru 475 ökutæki þessa akstursleið og því var brotahlutfallið 26%, en meðalhraði hinna brotlegu var 54 km/klst. Nítján óku á 60 km hraða eða meira, fjórir á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 80. Þess má geta að við þrjár hraðamælingar á sama stað í ársbyrjun, þegar leyfður hámarkshraði var 50, var brotahlutfallið 2  - 4%.

Lögreglan segir í tilkynningunni að ekki verði annað sagt en að niðurstaða dagsins valdi vonbrigðum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert